Sautjánda færsla
Set hér inn upplýsingar einhversstaðar um hvernig er hægt að ná í mig!
kv. Sigurpáll
1 athugasemd


Sælt veri fólkið!
Ég hef vegna fjölda áskoranna ákveðið að henda hér inn eins og einni svaðalega djúsí og seðjandi færslu!
Til að byrja með vil ég óska ykkur gleðilegs nýs árs um leið og ég þakka fyrir það gamla!
Næst á dagskrá er að óska tvíburabræðrunum Veigari Þór og Alberti ,,Mini-me” til hamingju með afmælisdaginn í dag, litlu drengirnir orðnir tuttugu og...
Ætli það sé þá ekki best að maður reyni að koma einhverju öðru en heillaóskum frá sér.
Flest öll blogg sem ég hef lesið undanfarna daga stikla á stóru frá árinu 2006, kannski maður geri það bara líka:
Útskrifaðist úr ML
Byrjaði í Kennaraháskólanum
Datt íða einu sinni eða tvisvar
Annars er margt og mikið að frétta af manni svosem síðan maður henti hér inn færslu síðast. Ég hef ákveðið að segja skilið við skólagöngu mína í bili, því miður! Prófin fóru ekki alveg eins og maður óskaði, náði þó 2 áföngum af 5 og þar af leiðandi 6 einingum af þeim 15 sem að ég tók á haustönninni. Reyndar get ég ekki sagt að ég hafi hætt í skólanum, þar sem að ég sagði mig úr þeim áföngum sem ég var skráður í á vorönn og sótti svo um námsleyfi veturinn 2007-2008 þannig að haustið 2008 get ég gengið inn í skólann aftur án þess að sækja um, ef ég vil, stefnan er tekin á það í það minnsta. Ég verð nú að viðurkenna það að ég er nú þegar eiginlega farinn að sakna bekkjarins sem ég var í, frábært lið í alla staði! Það er líka eins gott að þau bjóði manni í öll bekkjarpartý og þannig gleðskapi! Heyriði það!
En já, staðan hjá mér í dag er því þannig að ég er bara vinnandi eins og geðsjúklingur á sambýlinu sem ég vann á með skólanum, er búinn að bæta á mig alveg helling af vöktum sem er bara fínt. Stefni á að hætta þar samt um mánaðarmótin jan/feb og vona að ég verði þá kominn með vinnu suðurfrá, ætla nefnilega að flytja bara aftur heim til mömmu og pabba. Allavega búinn að sækja um á nokkrum stöðum þarna suðufrá, t.d. fríhöfninni, IGS í innritun og á bar, Kaupþing banka sem þjónusturáðgjafi/gjaldkeri og svo hjá Icelandair sem flugþjónn :P er reyndar spenntastur fyrir því jobbi, held að það gæti orðið helvíti skemmtilegt, þá fær maður líka að ferðast aðeins, eins og t.d. efmaður lendir í Ameríkuflugi er alltaf einn dagur í frí þar, t.d. á Flórída :p
Held samt að þetta sé bara orðið nokkuð gott í bili. Hendi hérna inn einni ansi stuttri og skemmtilegri myndasögu til að hressa ykkur aðeins við.

Bið bara að heilsa öllum sem ég þekki.
Kv. Sigurpáll
Daginn!
Fínasta helgi sem er að renna sitt skeið. Helgin fór nú reyndar í allt allt annað heldur en hún átti að fara í! Planið var að nota eins og eina helgi til að læra en eitthvað hefur það nú breyst. Fékk mér bjór hérna heima með Val og Heimi og kíktum svo til Simba og co. rólegt kvöld en þó bjór! Laugardagurinn fór svo í búðarráp með mömu, pabba, Hafdísi og Bjarna. Ákvað að henda mér í sjónmælingu í leiðinni, ussussuss maður er alltaf að verða meira og meira blindur, var alltaf með -1,0 og -0,75.... er nú kominn í -1,5 og -1,25 plús það að vera kominn með sjónskekkju og vesen, þannig að nú eru ný gleraugu á leiðinni, koma til landsins 22.des með Margréti.... usssusssusss þetta er svakalegt hahhaha.. Heyrðu kíkti svo með gamla liðinu á sportbar og svo að eta á Rossopomodoro á Laugarveginum, helvíti góð sjávarréttarsúpan þar. Uss endaði svo kvöldið á að fara með Desa, Pálma og Steina á players! Vinir vors og blóma! það var ekki sniug hugmynd þar sem ég endaði aðeins í glasi og peningarnir hurfu!
Nóg af þessu, ekkert gaman að þessu!
Prófin eru á fullu og ég drekk bara bjór, alls ekkert sniðugt!
Lennti í helvíti skemmtilegri lífsreynslu á prófinu á miðvikudaginn, las um daginn bloggið hjá Unni þar sem ég sá að hana langaði í próf, ég hugsaði hvort að það væri nú ekki í lagi með manneskjuna! Heyrðu, svo í miðju prófi á miðvikudaginn kom einhver andi yfir mig, mér fannst allt í einu geðveikt gaman og spennandi að vera í prófi!! Held ég hafi bara aldri fengið þessa tilfinningu áður! bara GEÐVEIKT GAMAN í prófi! hahha! þannig að þá skyldi ég Unni alveg... hahah
En að öðru! Ég tók afar merka ákvörðun á fimmtudaginn, og það er eitthvað sem ég ÆTLA að standa við! Ég ætla að flytja til útlanda! til Færeyja! langar geðveikt að prófa að búa þar!! Það kemur allt í ljós hvenar það verður núna í kringum áramótin, nái ég prófunum þá held ég að sjálfsögðu áfram í skólanum og það vona ég svo innilega að gerist, þar sem mig langar ekkert að hætta!! En nái ég þeim ekki er planið að fytja jafnvel strax núna í vor eða haust!
held að þetta sé nóg í bili samt sko, ætla að reyna að fara að læra eitthvað fyrir Mál og ritþjálfunar prófið sem er á morgun. Gangi mér vel!
kv. Sigurpáll
p.s. afsakið hve pistillinn er langur, missti mig þar sem maður reynir að gera allt annað en að læra þegar maður á að vera að læra fyrir próf :P
Jæja þar sem ég er svo húrrandi hress og hoppandi kátur ákvað ég að henda inn einni færslu!
Þetta gæti reyndar líka verið góð afsökun fyrir að vera ekki að læra, á nefnilega að vera að skrifa lífssögu. Saga um einstakling sem ég hef verið að heimsækja í nóvember, og á að vera hvorki meira né minna en 10-15bls. Ég er búinn með 1/4 af blaðsíðu, duglegur ha! Skil á mánudaginn! Svo styttist í prófin, hefjast næstkomandi miðvikudag með prófi í þroskasálfræði, held reyndar að ég sé fallinn á mætingu í henni
, það kemur í ljós í fyrramálið held ég. Og ef ég er ekki fallinn á mætingu er ég mjög stressaður fyrir þessu prófi og reikna fastlega með því að fall! ekkert voðalega svartsýnn er það? Svo á ég líka eftir að gera lokaverkefnið í tjáningu, við Halli ætlum að henda okkur í það einhverntímann um helgina.
Annars er bara allt fínt að frétta af mér ef skólanum er sleppt. Fór uppá Laugarvatn á fimmtudaginn, var að kynna blítt og létt með Aron, Leó og Jóni, tókst svona líka rosalega vel, miðað við allt. Mikið agalega var gaman að heyra hvað fólki fannst við skemmtilegir :P Aron sagði mér að á ballinu á föstudeginum voru einhverjir að segja honum að þeim hefði þótt keppnin ekki skemmtileg og voru alltaf að bíða eftir næstu kynningu :) enda voru þarna margir skemmtilegir karakterar eins og pólverjarnir, spákonan, hippinn, pönkarinn, hommarnir ofl. En já eftir það skelltum við okkur á drunkerí, fyrst á Lindinni og svo í Rusty, snilldar kerra þar á ferð og þegar ég náði að sofna á fimmtudagsnóttina hafði mér tekist að vaka í einar 36 klukkustundir, var s.s. nóttina áður að skrifa ritgerð með Halla í þroskasálfræðinni minni. Svo á föstudeginum var náttfataball og fjör, svo fór restin af helginni í vinnu sem var svosem ágætt. ótrúlega gaman að hitta svona mörg gömul bekkjarsystkini á ballinu. Verð að koma með eina sögu af ballinu, eða fyrir ballið, þannig var að við Gunnhildur fundum okkur sæng í einhverju herberginu á Kösinni, tókum hana og skiptum við næsta herbergi sem var opið, tókum svo sængina þar og fórum með í næsta, svona gekk þetta alla vistinna og ég held að mjög fáir hafi vaknað með sína sæng... hahah okkur fannst þetta alveg ógeðslega fyndið...
En já af því að ég fór uppá Laugarvatn á fimmtudaginn þá ,,slapp" ég við tímann í tjáningu en þar voru einmitt konfektmolar afhentir, það er semsagt, hver og einn í bekknum átti að skrifa einhvern konfektmola um aðra í bekknum, ég fékk nokkra afhenta í dag þegar ég mætti í skólann, ekkert smá gaman að lesa þetta, fékk meira að segja eina vísu sem ég hló mikið af, hún er svona:
Sigurpáll Árna er sem eldur logandi
Heitur og ungur
Ástarpungur
Verst hann er alltaf sofandi
hahaha þetta er helvíti gott, mig grunar helst að þetta komi frá Halla Valla án þess að ég viti nokkuð um það.
en já þetta fer að verða gott, þarf að fara að halda áfram að læra.
En já það fer hver að verða síðastur að verða gestur númer 1000, sem að svo sem skiptir engu máli því ég var búinn að lofa gesti númer 2496 verðlaunum, og það er nokkuð langt í það virðist vera.
En hérna rétt í restina er ein skemmtileg mynd, ég verð bara að birta hana, ég get hlegið alveg endlaust af svipnum á Svavari á henni hahahhahah
kv. Sigurpáll
Daginn, eða reyndar nóttina, klukkan er farin að ganga 3!
Mér leiðist, ákvað að henda inn einni örstuttri færslu.
Annars veit ég ekkert hvað ég á að segja hérna. Gleraugun mín eru svo ógeðslega skítug að ég varla sé neitt.
Jæja ég get þó allavega byrjað á því að segja ykkur að ég er fluttur, flutti mig um set innan höfuðborgarinnar. Er kominn á stúdentagarða, Skipholti 27, er að leigja hér herbergi með sér baði en sameiginlegri eldunaraðstöðu. Fínasta herbergi, er voðalega svipað að stærð og tveggja manna herbergin á Laugarvatni, í rauninni er þetta allt saman voðalega svipað og að vera á vistinni þar, fullt af fólki (sem ég reyndar þekki ekki neitt) netið dettur út á svona klukkutíma fresti, húsið læsist klukkan 12 og fleira í þeim dúrnum. Þið megið alveg endilega kíkja við í heimsókn, lofa því ekki að það sé heitt á könnunni en samt allt í lagi að kíkja. Kannski betra fyrir ykkur að hringja á undan ykkur, er voðalega sjaldan heima, en ef þið hringið þá reyni ég að vera heima, getið annað hvort hringt í gemsann (er með sama gamla númerið síðan 2000) 8651420 eða bara í heimasímann :) haha jább, það er sími á herberginu þannig að þið getið hringt heim, 5526477, svo þurfið þið að stimpla inn herbergisnúmerið, það er 209! bara svona ef þið viljið :)
En nóg um það, nóg um að vera framundan, það styttist óðum í prófin, kræst, ég er nú ekkert vanur að vera of stressaður yfir prófum en það er svona aðeins að læðast að manni stressið, ritgerðarskil og lífssöguverkefni framundan líka. Ég trúi því bara ekki að ég sé að verða búinn með 1/6 af háskólanum!
En nenni nú ekki að tala um skólann eða lærdóminn. Blítt og létt er á vatninu á fimmtudaginn, ætli maður reyni ekki að kíkja, eða þú veist maður reynir voða lítið, maður fer bara, þarf víst að mæta á staðinn. Við, Aron, Leó og Jón Orri eigum víst að sjá um að skemmta Laugvetningum og hinum á milli atriða. Leó og Jón voru einmitt hjá mér hérna áðan og vorum svona aðeins að reyna að skipuleggja okkur eitthvað. Jón klikkar ekki á því og mætti galvaskur með tvær kippur af Jólabjór sem við þurftum að smakka á, drakk eina þrjá, fannst malt jólabjórinn betri en bara jólabjórinn, en það er önnur saga. Svo er það bara ball á vatninu á föstudaginn, náttfatafjör.
úfff held að þetta sé að verða gott, held að það nenni enginn að lesa þetta hvort eð er, en ef þið eruð svo dugleg að nenna því megiði alveg láta mig vita :)
ætla að reyna að henda inn nýrri könnunn,
kv. Sigurpáll
Sæl veriði!
Ákvað að henda hér inn örfáum línum bara svona til að láta ykkur vita að ég lifi enn.
nóg að gera þessa dagana, bara skóli og vinna, lítið annað sem maður kemur í verk, en er nú búinn með vel flest stóru verkefnin í skólanum, að ég held allavega, að vísu ein ritgerð og ein lífssaga eftir en maður hlítur að möndla það einhvernveginn.
Fékk einkunn fyrir fyrstu háskólaritgerðina mína í gær. Fékk 8 fyrir hana, nokkuð sáttur bara með það, sérstaklega af því að hún var í Íslensku, um Jónas Hallgrímsson sem er víst sérsvið kennarans.
Svo er það bara bjór, eða vín eða hvorutveggja eða bara hvorugt í kvöld. Svavar er í bænum, erum að spá í að kíkja aðeins á miðbæjarlífið, þó svo það sé yfirleitt ekki upp á voðalega marga fiska, svo er það bara vinna alla helgina.
Þetta er nóg í bili, er í vinnunni.
kv. Sigurpáll
p.s. vill þakka fyrir þann ómælda stuðning sem ég fékk við síðustu færslu, fékk alveg 6 comment! Takk takk!
Kominn tími á eitt lítið blogg.
Menn eru hreinlega í hörku stuði þessa dagana. Agalega mikill lærdómur og brjálað fjör. Maður reynir nú að læra eitthvað, en það gengur misvel, en þetta kemur þó allt með tímanum held ég bara.
Annars er það að frétta af mér að nú er maður fluttur í bæinn, kominn með herbergi í vesturbænum, á Framnesvegi 21, fyrir þá sem það vildu vita. Maður er svona ennþá að reyna að koma sér almennilega inn í borgarlífið þessa dagana, prufaði til að mynda að taka strætó í gær, það tókst ekki vel ef ég á að fara eitthvað út í það, endaði með því að ég þurfti að labba töluverðann spotta í skólann, en bara gaman að því. Ég er reyndar alveg til í að læra á þetta strætó kerfi, fannst helvíti þægilegt að geta bara setið og ekki þurft að hafa neinar áhyggjur af umferðinni, kannski maður reyni að nota þetta meira, en þá þarf ég að kaupa mér kort, ætla ekki að fara að borga fleiri hundruð þúsund á viku, tók tvo bíla í gær og eyddi í það 500kr! Ekki alveg það sem ég þarf á að halda þessa dagana.
Ég var búinn að hugsa einhvern heilan helling sem ég ætlaði að setja hér saman í eitt blogg en kem einhverra hluta vegna engu upp úr mér núna. Veit ekkert hvað ég á að skrifa.
Helgin framundan er mjög óskýr, ætlaði á Akureyri en held að við séum hættir við það, ætlaði á Laugarvatn en held að Svavar vilji ekki fá mig í heimsókn, þannig að ég veit ekki alveg hvað skal gera. Held að það verði þá bara annaðhvort miðbærinn eða jafnvel Sandgerði, skils að Grétar Lárus og Kalli Bjarni séu að spila á Múttu Mía.
Held að þetta sé komið gott í bili, er kominn í helgarfrí og er að spá í að henda mér heim og leika við köttinn sem býr þar með mér, djöfull fer hann úr hárum maður, kræst, maður strýkur aðeins yfirbakið á honum og þá er maður kominn með efni í heila vettlinga (Ef það væri hægt að prjóna úr þessu).
Og eitt enn, er að spá í að veit verðlaun, sá sem verður gestur númer 2496 fær verðlaun, ekki enn búið að ákveð hver þau verða, en þau verða vegleg, hver veit hvað það verður... kannski eitt lakkrísrör? Bangsi? reiðhjól? ein bingókúla? það á allt eftir að koma í ljós.... Endilega kvittið fyrir komu ykkar.....
Kv. Sigurpáll